Apabókin

Published with Forlagid in 2019


Excerpt

Apabókin er sameiginleg matreiðslubók Óskars Magnússonar og móður hans, Ragnheiðar Jónsdóttur. Uppskriftirnar eru allar frá árinu 1972, sígildar, heilnæmar og móðurlegar. Þær voru skráðar ungum matsveini til halds og trausts þegar hann var ráðinn á togbátinn Sæborgu RE sem réri frá Reykjavík. Aldrei hafði hann eldað mat áður annan en saxbauta og fiskibollur úr dós en nú fékk hann það hlutverk að sjá um matseld fyrir átta manna áhöfn. Uppskriftirnar eru allar frá Ragnheiði, skráðar á einni viku áður en haldið var úr höfn. Þeim fylgja leiðbeiningar matsveinsins sem smám saman náði tökum á matseld og sjómennsku. Matreiðslubók af þessu tagi hefur ekki áður komið fyrir sjónir almennings ef frá er talin uppskriftin af skyrinu á Bergþórshvoli. Hún er handskrifuð, full af gagnlegum ábendingum en ekki síður húmor og skemmtilegheitum og jafnvel galskap sem stundum einkenna skrif Óskars Magnússonar.